Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fim 29. apríl 2021 16:30
Elvar Geir Magnússon
Siggi Raggi: Bæði lið vilja spila sóknarbolta
Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nýliðar Keflavíkur eiga leik gegn Víkingi Reykjavík á útivelli í fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, segir að það sé mikil spenna í Reykjanesbæ fyrir komandi tímabil.

„Það er mikil spenna. Það gekk ekki vel hjá Keflavík þegar við vorum síðast uppi en við teljum okkur vera með gott lið," segir Sigurður Ragnar.

Spámenn virðast hafa nokkuð góða trú á Keflavíkurliðinu og fáir að spá þeim falli.

„Okkur hefur gengið fínt og vorum góðir í fyrra. Við fórum í undanúrslitin í Lengjubikarnum en því miður náðist ekki að klára mótið. Það eru einhverjar væntingar til liðsins virðist vera."

Það má búast við skemmtilegum fótboltaleik, 19:15 á sunnudagskvöld.

„Við spiluðum við þá fyrir stuttu og þá fór 3-3 og leikurinn endaði í vítaspyrnukeppni. Það var leikur sem bauð upp á allt. Bæði lið spila góðan fótbolta, sóknarfótbolta, það verður skemmtilegt og spennandi að byrja mótið," segir Sigurður Ragnar.

„Maður myndi alltaf vilja bæta við en við erum með minna budget en flest önnur lið og erum að gera þetta skynsamlega. Svo viljum við vera með kjarna í liðinu af strákum frá Suðurnesjunum. Ég held að við höfum gert þetta á skynsamlegan hátt."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar segir Sigurður Ragnar meðal annars að þeir Magnús Þór Magnússon og Ísak Óli Ólafsson séu báðir á meiðslalistanum og missa væntanlega af leiknum á sunnudaginn.

föstudagur 30. apríl
20:00 Valur-ÍA (Origo völlurinn)

laugardagur 1. maí
17:00 HK-KA (Kórinn)
19:15 Stjarnan-Leiknir R. (Samsungvöllurinn)
19:15 Fylkir-FH (Würth völlurinn)

sunnudagur 2. maí
19:15 Breiðablik-KR (Kópavogsvöllur)
19:15 Víkingur R.-Keflavík (Víkingsvöllur)
Athugasemdir
banner
banner
banner