Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. ágúst 2021 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einn efnilegasti leikmaður Barcelona á óskalista Tottenham
Moriba á æfingu hjá Barcelona.
Moriba á æfingu hjá Barcelona.
Mynd: EPA
Tottenham er í viðræðum um kaup á Ilaix Moriba, efnilegum leikmanni Barcelona á Spáni.

Það er Sky Sports sem telur sig hafa heimildir fyrir þessum tíðindum.

Fjölmiðillinn segist hafa heimildarmann á Spáni sem telur samkomulag ekki fjarri og að það yrði ekki mikið vandamál að ná persónulegu samkomulagi við leikmanninn.

Barcelona vill um 20 milljónir evra fyrir 18 ára gamla miðjumanninn.

Moriba þykir einn efnilegasti leikmaður Barcelona en ekki hefur tekist að endursemja við hann. Núgildandi samningur hans rennur út næsta sumar. Barcelona er í miklum fjárhagsvandræðum og þarf að safna peningi.

RB Leipzig í Þýskalandi hefur einnig áhuga á Moriba og verður fróðlegt að sjá hvort hann fari fyrir gluggalok.
Athugasemdir
banner