Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 29. október 2019 21:58
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Lukaku og Martinez halda áfram að skora
Romelu Lukaku og Lautaro Martinez eru heitir þessa dagana
Romelu Lukaku og Lautaro Martinez eru heitir þessa dagana
Mynd: Getty Images
Brescia 1 - 2 Inter
0-1 Lautaro Martinez ('23 )
0-2 Romelu Lukaku ('63 )
1-2 Milan Skriniar ('76 , sjálfsmark)

Romelu Lukaku og Lautaro Martinez eru búnir að mynda magnað framherjapar saman en þeir sáu til að Inter ynni Brescia, 2-1, í Seríu A í kvöld.

Martinez gerði 7. mark sitt á leiktíðinni í öllum keppnum á 23. mínútu leiksins áður en Romelu Lukaku bætti við öðru á 63. mínútu. Lukaku var einnig að skora 7. markið á tímabilinu.

Milan Skriniar gerði sjálfsmark þrettán mínútum síðar en það kom ekki að sök og 2-1 sigur Inter í höfn. Inter er toppnum með 25 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner