Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 30. ágúst 2022 19:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Manchester United á eftir Dest - Ánægður hjá Barcelona
Sergino Dest
Sergino Dest
Mynd: EPA

Samkvæmt heimildum Sky Sports hefur Manchester United áhuga á því að fá Sergino Dest hægri bakvörð Barcelona.


Það myndi þýða að Aaron Wan Bissaka sé frjálst að yfirgefa félagið en West Ham og Crystal Palace hafa áhuga á enska bakverðinum.

Dest ræddi hins vegar við ESPN og sagðist vilja vera áfram hjá Barcelona.

„Ég er ánægður hjá Barcelona, ég vil vera áfram hér. I trúi því að við munum ekki spila meira í Evrópudeildinni. Það eru margir efnilegir hér, við erum að reyna búa til nýja kynslóð og það tekur tíma," sagði Dest.

Erik ten Hag stýrði Dest hjá Ajax tímabilið 2019/20 áður en Dest gekk til liðs við Barcelona.


Athugasemdir
banner
banner
banner