Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 30. september 2021 15:15
Brynjar Ingi Erluson
Guðni og Hlynur áfram með FH
Guðni og Hlynur verða áfram með FH
Guðni og Hlynur verða áfram með FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bræðurnir, Guðni Eiríksson og Hlynur Svan Eiríksson, verða áfram með kvennalið FH á næstu leiktíð en félagið staðfesti þetta í tilkynningu í dag.

Guðni tók við sem aðalþjálfari FH árið 2018 og hefur því stýrt því í þrjú keppnistímabil.

Liðið var nálægt því að komast upp í Pepsi Max-deildina á tímabilinu sem var að klárast en FH hafnaði í 3. sæti, fjórum stigum frá Aftureldingu sem hafnaði í öðru sæti.

Þá komst liðið í undanúrslit MJólkurbikarsins en Guðni hefur samþykkt að vera áfram með liðið út næsta keppnistímabil.

Hlynur Svan verður áfram aðstoðarþjálfari liðsins. Það er skýrt markmið FH að koma liðinu í deild þeirra bestu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner