Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 30. september 2021 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mætti í viðtal í bol merktum úrslitum leiksins gegn Leicester
Mahir Emreli
Mahir Emreli
Mynd: EPA
Legia Varsjá vann óvæntan 1-0 sigur gegn Leicester í Evrópudeildinni í dag.

Mahir Emreli skoraði eina mark leiksins eftir rúman hálftíma leik.

Það vakti mikla athygli að Emreli var mættur skömmu eftir leikinn í viðtal í sérútbúnum bol þar sem stóðu á úrslit leiksins með nöfnum liðanna og dagsetningu leiksins.

Leicester er aðeins með eitt stig í riðlinum eftir tvo leiki en Legia er með fullt hús stiga á toppi riðilsins.

mynd af Emreli í bolnum eftir leik má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner