Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 30. september 2021 17:15
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu bestu mörk mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni
Jesse Lingard á tvö mörk á listanum
Jesse Lingard á tvö mörk á listanum
Mynd: EPA
Þrjár umferðir fóru fram í september í ensku úrvalsdeildinni og var nóg af fallegum mörkum. Búið er að tilkynna þau átta mörk sem koma til greina sem mark mánaðarins.

Manchester United á tvo fulltrúa.. Mark Bruno Fernandes í 4-1 sigrinum á Newcastle United. Markið hjá Jesse Lingard í sama leik er einnig tilnefnt.

Þá á Lingard annað mark í 2-1 sigrinum á West Ham en það var af dýrari gerðinni.

Stórglæsilegt mark Andros Townsend í 3-1 sigri Everton á Burnley fær einnig tilnefningu. Romelu Lukaku, Naby Keita, Matty Cash og Pierre Emerick Aubameyang eiga einnig mörk á listanum.

Hægt er að sjá öll mörkin með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.

Hægt er að sjá mörkin hér og geta lesendur kosið um flottasta markið
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner