Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 30. desember 2020 22:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Championship: Markalaust í Wales - Rafael skellti í lás
Rafael var maður leiksins í Wales.
Rafael var maður leiksins í Wales.
Mynd: Getty Images
Swansea 0 - 0 Reading

Swansea tók á móti Reading í seinni leik dagsins í ensku Championship-deildinni.

Leikið var á Liberty Stadium í Swansea og var niðurstaðan 0-0 jafntefli.

Brasilíski markvörðurinn Rafael var maður leiksins en hann varði sex skot í marki Reading. Þar á meðal frábærlega í tvígang frá Andre Ayew.

Swansea er í 3. sæti deildarinnar með 40 stig, stigi á eftir Brentford í öðru sætinu. Reading er í sjötta sætinu með 37 stig.

Úrslit úr fyrri leiknum:
Brentford kom til baka og vann
Athugasemdir
banner