Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 31. janúar 2020 18:58
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikir: Dagur Dan skoraði gegn Start
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Það voru nokkur Íslendingalið að ljúka æfingaleikjum og komst Dagur Dan Þórhallsson á blað.

Dagur Dan og félagar í Mjondalen spiluðu æfingaleik við Start. Dagur jafnaði leikinn á 82. mínútu en það dugði ekki til því sigurmark Start kom skömmu síðar.

Guðmundur Andri Tryggvason er á mála hjá Start.

Start 2 - 1 Mjondalen
1-0 A. Afeez ('16)
1-1 Dagur Dan Þórhallsson ('82)
2-1 M. Ramsland ('86)

Ísak Bergmann Jóhannesson var þá í byrjunarliði Norrköping sem tapaði fyrir liðsfélögum Hjartar Hermannssonar í Bröndby.

Eggert Gunnþór Jónsson var í byrjunarliði SönderjyskE sem lagði tékkneska félagið Bohemians 1905 af velli.

AIK (Kolbeinn Sigþórsson) tapaði þá fyrir Sundsvall á meðan Ålesund (Davíð Kristján Ólafsson, Daníel Leó Grétarsson, Hólmbert Aron Friðjónsson) tapaði gegn Brattvag.

Bröndby 2 - 0 Norrköping

SönderjyskE 2 - 0 Bohemians 1905

Sundsvall 1 - 0 AIK

Ålesund 1 - 2 Brattvag
Athugasemdir
banner
banner