Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 31. janúar 2020 08:41
Magnús Már Einarsson
Man Utd vill ekki Willian Jose - Tottenham í viðræðum
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur hafnað boði um að fá framherjann Willian Jose í sínar raðir frá Real Sociedad.

Sociedad vill fá 25 milljónir punda fyrir Brasilíumanninn en Tottenham hefur verið á eftir honum undanfarnar vikur.

Samkvæmt frétt Sky hefur Tottenham ekki gefist upp en félagið ætlar að freista þess að fá leikmanninn á láni í dag.

Manchester United er hins vegar í leit að framherja í hópinn út tímabilið þar sem Marcus Rashford verður frá keppni í að minnsta kosti tvo mánuði.

Willian Jose kemur ekki félagsins en United gæti fundið annan framherja í dag.
Athugasemdir
banner
banner