Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 31. janúar 2020 12:39
Magnús Már Einarsson
Wolves að kaupa strákinn sem skoraði 16 ára á Old Trafford
Mynd: Getty Images
Wolves er að kaupa varnarmanninn Luke Matheson frá Rochdale á eina milljón punda.

Matheson mun fara aftur til Rochdale á láni út tímabilið.

Matheson er 17 ára í dag en hann var 16 ára gamall þegar hann skoraði með Rochdale gegn Manchester United í enska deildabikarnum í leik á Old Trafford í september.

Frammistaða hans þar vakti verðskuldaða athygli hjá félögum í ensku úrvalsdeildinni en Wolves er nú að vinna kapphlaupið um hann.

Sjá einnig:
16 ára markaskorari Rochdale: Fékk frí í skóla í gær en mætir í dag
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner