Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
banner
   mán 31. maí 2021 22:00
Aksentije Milisic
Bale veit hvar framtíð hans liggur
Mynd: EPA
Gareth Bale segir að hann viti hvar framtíð sín liggur. Hann ætlar hins vegar ekki að segja neitt fyrr en eftir Evrópumótið í sumar.

Bale er samningsbundinn Real Madrid en hann var á láni hjá Tottenham Hotspur á þessari leiktíð þar sem hann stóð sig vel.

Bale sagði eftir lokaleik tímabilsins að hann viti hvar hann muni spila á næstu leiktíð. Hann vill hins vegar ekki segja frá því strax og segir Bale að allt yrði brjálað ef hann myndi segja frá því núna.

„Það hefur verið mikið skrifa um hvort ég geri hitt eða þetta. Ég vil ekki segja neitt sem mun valda ólgu. Ég einbeiti mér bara að Evrópumótinu með Wales," sagði Bale.

Fyrsti leikur Wales verður gegn Sviss í Bakú þann 12. júní og fjórum dögum síðar mætir liðið Tyrkjum.

Bale átti nokkuð kaflaskipt tímabil með Spurs í vetur. Hann var lengi að koma sér inn í liðið en það tókst að lokum. Í kjölfarið tók Jose Mourinho hann hins vegar aftur út en svo þegar Mourinho var rekinn þá byrjaði Bale að spila og skora á ný.

Hann endaði með sextán mörk fyrir Tottenham á nýliðinni leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner