Afturelding heimsótti Þórsara á SaltPay völlinn á föstudag. Þórsarar hirtu stigin þrjú en í stöðunni 2-1 fyrir Þór vildi Afturelding fá vítaspyrnu þegar skammt var eftir.
Hafliði Sigurðarson átti skot að marki sem Jóhann Helgi Hannesson varði með höndinni á línunni. Atvikið má sjá í spilaranum hér að neðan en hér en Magnús Már Einarsson. þjálfari Afturelding, hafði þetta að segja eftir leik.

„Svo erum við rændir marki á 85. mínútu þegar útileikmaður þeirra er eins og Guðmundur Hrafnkelsson, tekur bara x-ið, ver boltann hérna (og bendir á aðra höndina) , þetta er nátturulega bara víti og rautt alls staðar í heiminum en einhverra hluta vegna var það ekki hérna á Þórsvelli."
„Maður er gríðarlega svekktur og í staðinn er okkar maður dæmdur í leikbann fyrir að mótmæla. Ég skil vel að strákarnir hafi verið pirraðir. Þetta er bara víti og rautt, við vorum rændir þarna og hann er að bjarga marki. Staðan er 2-2 ef maðurinn er ekki að verja með hendi á línunni," sagði Maggi.
Viðtalið við Magga má sjá í heild hér að neðan.
Athugasemdir