Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 31. maí 2022 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea fær 15 milljónir fyrir sigur Real Madrid
Mynd: EPA

Daily Mail greinir frá því að Chelsea fær 15 milljónir punda fyrir sigur Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.


Chelsea seldi Eden Hazard til Real Madrid fyrir metfé sumarið 2019 og var sigur í Meistaradeild Evrópu meðal árangurstengdra greiðslna í kaupsamningnum.

Real borgaði 88,5 milljónir punda fyrir Hazard en sú upphæð gat farið í 130 milljónir með aukagreiðslum.

Hazard spilaði aðeins 83 mínútur á Meistaradeildartímabili Real og var ónotaður varamaður í úrslitaleiknum gegn Liverpool.


Athugasemdir
banner
banner
banner