Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 31. maí 2022 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea tilbúið til að selja Alonso
Mynd: Getty Images

Barcelona vill kaupa Marcos Alonso í sumar og er Chelsea reiðubúið til að selja þennan spænska bakvörð ef samkomulag næst við Barca.


Börsungar vilja ekki borga mikið fyrir Alonso sem er 31 árs og á aðeins eitt ár eftir af samningnum sínum við Chelsea.

Alonso hefur verið meðal betri leikmanna Chelsea undanfarin ár og á í heildina 212 keppnisleiki að baki fyrir félagið. Hann á þó aðeins sjö landsleiki fyrir Spán þar sem hann hefur þurft að berjast við Jordi Alba og Jose Gaya um byrjunarliðssæti.

Alonso, sem hefur unnið allt mögulegt með Chelsea nema enska deildabikarinn, er búinn að samþykkja samningstilboð frá Barca.


Athugasemdir
banner
banner
banner