Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 31. maí 2022 08:30
Victor Pálsson
Milner möguleiki fyrir Gerrard?
Mynd: EPA

James Milner gæti reynst öflugur möguleiki fyrir Steven Gerrard í sumar ef hann ákveður að fara frá Liverpool í sumarglugganum.


Milner er byrjaður að spila mun minna hlutverk á Anfield en hann er 36 ára gamall og styttist í lok ferilsins sem hefur verið sigursæll.

Jason McAteer, fyr rum leikmaður Liverpool, telur að Villa gæti reynst kostur fyrir Milner sem lék með liðinu 2005-2006 og síðar 2008-2010.

Milner er í raun orðin smá goðsögn í augum stuðningsmanna Liverpool en hann hefur leikið þar við góðan orðstír frá árinu 2015.

Steven Gerrard er einmitt stjóri Villa en hann var á förum frá Liverpool er Milner samdi fyrir sjö árum síðan.

„Það er gríðarlega mikilvægt að hann fái eitthvað hlutverk hjá félaginu. James er ekki að yngjast en tölurnar sem hann býður upp á eru frábærar," sagði McAteer.

„Ég get ekki séð hann fara til Chelsea, Arsenal eða Manchester City. Kannski er Aston Villa möguleiki."

Milner verður samningslaus í sumar en hann skrifaði síðast undir nýjan samning fyrir þremur árum síðan.


Athugasemdir
banner
banner