West Ham ætlar að virkja kaupákvæði í lánssamningi Alphonse Areola sem deildi markmannssætinu með Lukasz Fabianski á tímabilinu.
Areola spilaði 18 leiki fyrir West Ham, þar af einn í ensku úrvalsdeildinni, að láni frá franska stórveldinu PSG og er kaupákvæði í lánssamningnum.
Fabrizio Romano segir að Hamrarnir ætli að nýta sér þetta ákvæði, sem nemur 9 milljónum punda. Stjórn West Ham mun ræða við umboðsmann Areola í næstu viku.
Areola er 29 ára gamall og á þrjá landsleiki að baki fyrir Frakkland. Hann lék 107 leiki fyrir PSG og hefur einnig spilað að láni hjá Real Madrid og Villarreal.
Samningur hans við PSG rennur út á næsta ári.
Athugasemdir