Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 31. júlí 2022 17:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
EM kvenna: Framlengt í úrslitaleiknum - Sjáðu mörkin
Mynd: EPA
England W 1 - 1 Germany W
1-0 Ella Toone ('62 )
1-1 Lina Magull ('79 )

England og Þýskaland mættust í úrslitaleik EM kvenne í dag. Mótið fór fram á Englandi en liðin mættust á Wembley.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð rólegur en bæði lið fengu þó sín færi en báðir markverðirnir héldu hreinu og því markalaust í hálfleik.

Þær þýsku byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti en Mary Earps í marki Englands var vel vakandi og sá við þeim. Ella Toone framherji Englands og Manchester United kom inná sem varamaður snemma í síðari hálfleiknum.

Hún gerði sér lítið fyrir og kom Englandi yfir eftir rúmlega klukkutíma leik þegar hún vippaði boltanum snyrtilega yfir Merle Frohms í marki Þýskalands.

Þjóðverjar gáfust ekki upp og Lina Margull leikmaður Bayern Munchen jafnaði metin þegar tæplega 10 mínútur voru eftir af leiknum.

Fleiri urðu mörkin ekki í venjulegum leiktíma svo það er framlenging framundan.

Sjáðu mörkin:
Mark Englands

Mark Þýskalands


Athugasemdir
banner
banner
banner