Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 31. desember 2017 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Marco Silva: Erfitt að sætta sig við þetta
Mynd: Getty Images
Marco Silva og hans menn í Watford töpuðu naumlega fyrir Swansea í gær en gestirnir skoruðu sigurmarkið undir lok leiksins.

Silva sagði það erfitt að sætta sig við úrslitin og sagði að hans menn hefðu gert nóg til að vinna leikinn.

„Það er mjög erfitt að sætta sig við þetta, við erum mjög vonsviknir og stuðningsmennirnir eru það líka."

„Við gerðum nóg til að vinna leikinn, við stjórnuðum leiknum. Þeir áttu eitt skot í slánna en annars vorum það við sem stjórnuðum leiknum, við skoruðum eitt mark og fengum færi til að drepa leikinn," sagði Marco Silva.

Swansea lyfti sér af botninum með sigrinum í gær, en Watford situr áfram í 10. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner