Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 31. desember 2020 06:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arteta um Isco: Get ekki rætt einstaka leikmenn
Mynd: Getty Images
Spánverjinn Isco hefur verið orðaður við komu til Arsenal í janúar-glugganum.

Sögusagnir á Englandi segja að Arsenal vilji fá hann á hálfs árs samningi út þessa leiktíð. Mikel Arteta, stjóri Arsenal, gaf ekkert uppi eftir sigurinn á Brighton á þriðjudag.

„Síðustu úrslit hafa engin áhrif á okkar nálgun á gluggann. Við getum ekki talað um einstaka leikmenn," sagði Arteta.

Arsenal hefur verið orðað við marga miðjumenn að undanförnu og er Isco einn þeirra.

Isco lék ekki með Real Madrid í gær þar sem unnusta hans var á leið á sjúkrahús að fæða barn þeirra.
Athugasemdir
banner
banner