Það urðu breytingar á markvarðateymi KA í gær þegar Kristijan Jajalo kom til félagsins og Aron Elí Gíslason var lánaður í Magna.
Jajalo, sem varði mark Grindavíkur, verður þó varamarkvörður KA. Þetta sagði Óli Stefán Flóventsson, þjálfari KA, við Fótbolta.net í dag.
Jajalo, sem varði mark Grindavíkur, verður þó varamarkvörður KA. Þetta sagði Óli Stefán Flóventsson, þjálfari KA, við Fótbolta.net í dag.
„Við erum með unga og mjög efnilega markverði og ég vissi að þegar kæmi að því að velja markvörð númer eitt þá yrði sá sem yrði númer tvö ósáttur," sagði Óli.
Niðurstaðan var því að Aron Elí fór á lán en hinn 19 ára Aron Dagur Birnuson er aðalmarkvörður KA.
„Aron Dagur er markvörður númer eitt hjá KA og Kristijan er fenginn til að 'bakka hann upp'."
KA leikur gegn ÍA í fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar á laugardag. Í viðtalinu við Óla, sem sjá má hér að ofan, ræðir hann um þann leik og mögulega viðbót í leikmannahópinn. Hann segir hugsanlegt að KA fái til sín einn leikmann til viðbótar.
Pepsi Max-deildin:
föstudagur 26. apríl
20:00 Valur-Víkingur R. (Origo völlurinn)
laugardagur 27. apríl
14:00 Grindavík-Breiðablik (Grindavíkurvöllur)
14:00 ÍBV-Fylkir (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-HK (Kaplakrikavöllur)
16:00 ÍA-KA (Norðurálsvöllurinn)
20:00 Stjarnan-KR (Samsung völlurinn)
Smelltu hér til að hlusta á upphitunarþátt deildarinnar
Athugasemdir