Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 23. apríl 2019 17:58
Arnar Helgi Magnússon
Jajalo til KA - Aron Elí til Magna á láni (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
KA hefur gengið frá samningi við markvörðinn Kristijan Jajalo. Þá hefur Aron Elí Gíslason verið lánaður til Magna.

Jajalo gerir samning við KA út þetta tímabil.

Kristijan Jajalo hefur leikið síðustu þrjú sumur í Grindavík undir stjórn Óla Stefán Flóventssonar sem tók við KA liðinu í vetur og þeir þekkjast því vel.

Í vetur talaði Óli Stefán um að hann stefndi á að gefa Aroni Elí Gíslasyni og nafna hans Aroni Degi Birnusyni traustið í sumar en Aron Dagur lék á láni hjá Völsungi í síðasta sumar. Aron Elí spilaði seinni hluta síðasta tímabils og þótti standa sig vel.

„Um leið og við óskum Aroni alls hins besta hjá vinum okkar í Magna bjóðum við Kristijan velkominn í KA. Kristijan kemur til liðs við KA frá Grindavík þar sem hann hefur spilað síðustu 3 ár," segir á heimasíðu KA.

KA er spáð 7. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar en Magna er spáð neðsta sæti Inkasso-deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner