Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   lau 26. október 2019 22:38
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola: Grealish er of dýr fyrir Man City
Jack Grealish
Jack Grealish
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að félagið myndi ekki hafa efni á því að kaupa Jack Grealish frá Aston Villa.

City vann Aston Villa 3-0 í dag en Guardiola talaði mikið um Grealish eftir leikinn.

Grealish átti góðan leik með Villa þrátt fyrir tapið.

„Grealish er ótrúlegur leikmaður. Alger toppleikmaður og ég er ánægður með að hann sé að spila með Aston Villa þó hann hafi fengið tilboð frá öðrum félögum," sagði Guardiola.

„Ég elska það hvernig liðið komst upp um deild og hann hjálpaði liðinu. Hann hæfileikaríkur og hraður á síðasta þriðung vallarins. Hann skapar alltaf eitthvað og er hreint út sagt stórkostlegur en of dýr fyrir Manchester City!" sagði Guardiola ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner