Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25178 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR22.06.2023, 17:30

Roberts frá Leeds til Birmingham (Staðfest) - „Gerði mig að manni"

Tyler Roberts er genginn í raðir Birmingham eftir fimm og hálft ár hjá Leeds United. Kaupverðið er óuppgefið og skrifar Roberts undir fjögurra ára samningi. Roberts hefur á sínum ferli verið viðloðinn velska landsliðið og á að baki 20 landsleiki. Hann er 24 ára sóknarmaður sem uppalinn er hjá WBA og lék hann á láni með QPR á liðnu tímabili.

FRÉTTIR22.06.2023, 10:15

Dzeko til Fenerbahce (Staðfest)

Tyrkneska félagið Fenerbahce er búið að ganga frá samningi við bosníska sóknarmanninn Edin Dzeko. Hann kemur til félagsins frá Inter á Ítalíu og skrifar undir tveggja ára samning.

FRÉTTIR21.06.2023, 17:38

Oliver Haurits leggur skóna á hilluna vegna meiðsla (Staðfest)

Danski sóknarmaðurinn Oliver Haurits hefur lagt skóna á hilluna. Frá þessu greindi hann í Instagram færslu í síðasta mánuði. Haurits er einungis 22 ára gamall en leggur skóna á hilluna vegna þrálátra bakmeiðsla sem hann varð fyrir síðasta sumar í leik með HK. <i>„Ef þú vilt geta leikið þér með börnum þínum eftir tíu ár, þá ættiru kannski að íhuga að hætta núna."</I> segir í frétt <i>Tipsbladet</I> sem birt var á laugardag. Sérfræðingur sagði þessi orð við Haurits.

FRÉTTIR21.06.2023, 16:00

Roma krækir í Ndicka (Staðfest)

Ítalska félagið Roma hefur fengið miðvörðinn Evan Ndicka í sínar raðir. Hann kemur á frjálsri sölu frá þýska félaginu Eintracht Frankfurt þar sem samningur hans var að renna út. Frankfurt vildi halda leikmanninum en Ndicka vildi ekki framlengja við félagið.

FRÉTTIR21.06.2023, 12:00

Toni Kroos áfram hjá Real (Staðfest)

Real Madrid tilkynnti í dag að þýski miðjumaðurinn Toni Kroos væri búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið og væri nú samningsbundinn fram á næsta sumar. Tíðindin hafa legið í loftinu undanfarna mánuði en Real ákvað fyrst núna að staðfesta framlenginguna.

FRÉTTIR20.06.2023, 09:51

Nkunku orðinn leikmaður Chelsea (Staðfest)

Chelsea hefur tilkynnt um kaup á franska landsliðssóknarmanninum Christopher Nkunku frá þýska félaginu RB Leipzig fyrir 52 milljónir punda. Þessi 25 ára leikmaður skoraði 16 mörk í 25 leikjum í Bundesligunni á síðasta tímabili.

FRÉTTIR19.06.2023, 17:39

Napoli gengur frá kaupum á Simeone (Staðfest)

<p>Það var margt óljóst í kringum félagsskipti Giovanni Simeone frá Verona til Napoli síðasta sumar. Napoli borgaði 3,5 milljónir evra til að fá Simeone á eins árs lánssamningi.</p>

FRÉTTIR19.06.2023, 13:00

Fyrrum landsliðsmaður í körfubolta í 5. deild (Staðfest)

Körfuboltamaðurinn Maciej Baginski hefur fengið félagaskipti frá Njarðvík í Hafnir. Það má sjá á heimasíðu KSÍ. Maciej er, eins og fyrsta orð greinarinnar gefur til kynna, talsvert þekktari fyrir sína körfuboltahæfileika en fótboltahæfileikana.

FRÉTTIR19.06.2023, 12:30

Joselu til Real Madrid (Staðfest)

Real Madrid hefur náð samkomulagi við Espanyol um að fá sóknarmanninn Joselu á eins árs lánssamningi. Real hefur svo möguleika á því að kaupa Joselu í lok lánssamningsins. Joselu hefur áður verið hjá Real því hann lék með varaliði félagsins í tvö ár eftir að hann varð tvítugur og lék sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið árið 2011. Eftir það hélt hann til Þýskalands, lék svo með Stoke og Newcastle á Englandi áður en hann sneri aftur til Spánar sumarið 2019.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.