Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. september 2021 20:10
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Átti Ronaldo að fá rautt?
Cristiano Ronaldo fyrir leikinn gegn Írum í kvöld
Cristiano Ronaldo fyrir leikinn gegn Írum í kvöld
Mynd: EPA
Portúgalska stjarnan Cristiano Ronaldo slapp með skrekkinn í byrjun leiks gegn Írlandi í undankeppni HM í kvöld en hann sló Dara O'Shea, leikmann írska liðsins.

Bruno Fernandes vann vítaspyrnu fyrir Portúgal á 15. mínútu og var það Ronaldo sem ákvað að fara á punktinn.

Hann var búinn að stilla boltanum upp og klár í að taka vítið en beðið var eftir niðurstöðu VAR sem skoðaði vítaspyrnu dóminn.

O'Shea potaði boltanum af punktinum og brást Ronaldo illa við og sló írska varnarmanninn en uppskar þó ekki spjald fyrir þessa hegðun.

Hægt er að sjá myndband af atvikinu hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner