Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 02. janúar 2018 14:13
Elvar Geir Magnússon
Trevor Sinclair keyrði fullur og sakaði löggu um rasisma
Trevor Sinclair í leik árið 2007.
Trevor Sinclair í leik árið 2007.
Mynd: Getty Images
Trevor Sinclair, fyrrum landsliðsmaður Englands, hefur játað að hafa keyrt bíl undir áhrifum áfengis og ranglega sakað lögreglumann um kynþáttafordóma.

Sinclair var handtekinn fyrir ölvunarakstur og hefur nú verið dæmdur í 150 klukkustunda ógreidda samfélagsvinnu. Þá missir hann ökuréttindi í 20 mánuði.

Þá þarf hann að greiða lögreglumanninum rúmlega 70 þúsund íslenskar krónur í skaðabætur.

Eftir að hann var handtekinn meig hann á sig í lögreglubílnum.

Sinclair hefur reglulega sest á skjánum hjá BBC þar sem hann hefur tekið að sér leikgreiningu. Á leikmannaferlinum lék hann meðal annars fyrir Blackpool, QPR, West Ham, Cardiff og Manchester City. Hann lék tólf landsleiki fyrir England en lagði skóna á hilluna 2008.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner