Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 03. mars 2020 10:22
Magnús Már Einarsson
Torreira var borinn af velli í gær
Mynd: Getty Images
Lucas Torreira, miðjumaður Arsenal, var borinn meiddur af velli gegn Portsmouth í enska bikarnum í gærkvöldi.

Hinn 24 ára gamli Torreira meiddist á hægri fæti eftir tæklingu frá James Bolton varnarmanni Portsmouth.

Torreira var borinn út af og hann fékk súrefni úr súrefnisgrímu hjá læknaliði Arsenal á leið af velli.

„Lucas var mjög þjáður og hann er í spelku. Við munum skoða hann betur á næstu dögum og þá vitum við meira," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner