Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 03. október 2020 14:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Talksport: Man Utd í viðræðum við Cavani
Edinson Cavani.
Edinson Cavani.
Mynd: Getty Images
Í gær sagði vefmiðillinn Goal að Manchester United hefði ekki sett sig í samband við sóknarmanninn Edinson Cavani.

Í dag segir Talksport í Bretlandi að Man Utd sé í viðræðum við Cavani og hans umboðsmenn.

Cavani er að leita að félagi þessa stundina en hann er án félags eftir að hafa yfirgefið Paris Saint-Germain fyrr á þessu ári þegar samningur hans rann út.

Cavani er 33 ára gamall biður hann um mjög há laun.

Odion Ighalo er í augnablikinu varasóknarmaður Manchester United en hann er í láni hjá félaginu fram í desember.

Félagaskiptaglugginn lokar á mánudag en Cavani gæti samið við Man Utd eftir þann dag þar sem hann er án félags. Búast má við því að það verði nóg að gera hjá United fram á mánudag, en margir leikmenn eru orðaðir við félagið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner