Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 03. október 2021 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Orri skoraði tvö í gær - „Þau skora sig ekki sjálf"
Mynd: FC Kaupmannahöfn
Orri Steinn Óskarsson skoraði tvö mörk í 4-0 sigri undir 19 ára liðs FC Kaupmannahafnar gegn undir 19 ára liði AGF í gær.

FCK er óstöðvandi en liðið er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar eftir sjö leiki með markatöluna 32-5.

Orri hefur farið á kostum en hann er nú kominn með níu mörk í sjö leikjum.

Orri er 17 ára gamall en hann lék 12 leiki fyrir Gróttu í næst efstu deild árið 2019 áður en hann hélt út til FCK.


Athugasemdir
banner
banner