Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 04. maí 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - KR-ingar í Garðabæ og Blikar fara til Keflavíkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir leikir eru á dagskrá í Bestu deild kvenna í dag en Breiðablik fær verðugt verkefni er liðið heimsækir Keflavík á HS Orku-völlinn klukkan 19:15.

Ana Santos skoraði þrennu er Keflavík vann KR 4-0 í fyrstu umferð deildarinnar á meðan Blikar unnu Þór/KA 4-1 á Kópavogsvelli.

Þessi lið eigast við klukkan 19:15 í kvöld en á sama tíma spilar Stjarnan við KR á Samsungvellinum. Stjarnan gerði 1-1 jafntefli við ÍBV í fyrstu umferðinni og leitar því að fyrsta sigri sínum í kvöld.

Leikir dagsins:

Besta-deild kvenna
19:15 Keflavík-Breiðablik (HS Orku völlurinn)
19:15 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn)
Athugasemdir
banner
banner
banner