Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 04. september 2021 23:30
Aksentije Milisic
Southgate hrósar Bamford: Hefur aðlagast hópnum vel
Mynd: EPA
Gareth Southgate, stjóri enska landsliðsins, hefur hrósað Patrick Bamford, leikmanni Leeds United.

Bamford var valinn í leikmannahóp Englands í þessum landsliðsglugga en hann spilaði mjög vel fyrir Leeds í enskur úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

England á leik gegn Andorra á morgun og talið er að Bamford fái að spila í þeim leik. Hann sat allan tímann á varamannabekknum þegar England vann Ungverjaland fyrr í vikunni.

„Hann hefur ekki haft mikinn tíma til þess að æfa með okkur en ég held að hann sjá hvernig við viljum spila. Hann hefur aðlagast hópnum vel. Við viljum að hann njóti sín og okkur hlakkar til að sjá hann spila."

England og Andorra mætast á morgun klukkan 4 á Wembley í I-riðli.
Athugasemdir
banner
banner