Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 05. júní 2021 10:25
Elvar Geir Magnússon
Ruben Dias leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni
Ruben Dias var lykimaður á meistaratímabili City.
Ruben Dias var lykimaður á meistaratímabili City.
Mynd: EPA
Ruben Dias, varnarmaður Manchester City, er leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Hann var lykilmaður hjá Englandsmeisturunum á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu en hann kom frá Benfica fyrir ári síðan.

Hér má sjá hverjir voru tilnefndir

Portúgalinn var einnig valinn bestur af tímabilinu í kjöri íþróttafréttamanna á Bretlandseyjum.

Ruben Dias var einn af sex leikmönnum Manchester City sem valdir voru í opinbert úrvalslið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni en það var kynnt í gær.

Hinnir fimm City mennirnir eru Ederson, John Stones, Joao Cancelo, Kevin De Bruyne og Ilkay Gundogan. Auk þess eru í úrvalsliðinu Luke Shaw og Bruno Fernandes frá Manchester United, Harry Kane og Son frá Tottenham og Mo Salah frá Liverpool.

Seinna í dag verður opinberað hver er stjóri ársins og besti ungi leikmaðurinn.


Athugasemdir
banner
banner
banner