Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
banner
   mán 06. janúar 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Antonio Valencia vill komast aftur í enska boltann
Mynd: Getty Images
Antonio Valencia, fyrrum kantmaður Manchester United, vill snúa aftur í enska boltann.

Hinn 34 ára gamli Valencia spilaði með Manchester United í tíu ár áður en hann sneri aftur heim til Ekvador síðastliðið sumar.

Valencia varð bikarmeistari með LDU Quito í heimalandinu en nú leita hugur hans aftur til Englands.

Umboðsmenn á vegum Valencia eru með málið í sínum höndum en leikmaðurinn er til í að spila í úrvalsdeildinni eða Championship deildinni.

Á síðasta tímabili sínu hjá Manchester United var Valencia mikið meiddur á læri en þau meiðsli eru nú úr sögunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner