Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 07. janúar 2022 20:40
Victor Pálsson
Dembele þarf að skrifa undir til að spila fleiri leiki
Mynd: EPA
Ousmane Dembele, leikmaður Barcelona, er sagður þurfa að skrifa undir nýjan samning við félagið vilji hann spila annan leik.

Það er Times sem greinir frá þessu en Dembele var um tíma tilbúinn að taka á sig launalækkun til að framlengja samning sinn við Börsunga.

Hins vegar eftir komu Ferran Torres hefur Dembele skipt um skoðun en þar borgar Barcelona allt að 54 milljónir punda fyrir nýjan leikmann.

Samkvæmt Marca þá þarf Barcelona að losa Dembele ef hann samþykkir ekki launalækkun til að geta skráð Torres í leikmannahóp sinn.

Þolinmæði Barcelona er lítil og mun félagið ekki bíða þar til í sumar með að losa Frakkann sem gæti því farið í janúarglugganum.

Xavi Hernandez, stjóri Barcelona, vill halda Dembele og telur hann mikilvægan hlekk af sínum plönum en ef hann skrifar ekki undir eru líkur á að leikirnir verði ekki fleiri.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner