Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 08. nóvember 2022 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Vlahovic og Sesko efstir á lista sem arftakar Ronaldo
Mynd: Getty Images

Sky Sports greinir frá því að serbneski sóknarmaðurinn Dusan Vlahovic og slóvenski sóknarmaðurinn Benjamin Sesko séu efstir á óskalista Manchester United sem leitar að arftaka Cristiano Ronaldo.


Erik ten Hag vantar sóknarmann til að fullkomna framlínuna en flest virðist benda til þess að Ronaldo yfirgefi Rauðu djöflana á frjálsri sölu næsta sumar.

Sesko er 19 ára og spilar fyrir RB Salzburg á meðan Vlahovic er 22 ára og er hjá Juventus.

Báðir eru þeir lykilleikmenn í sínum liðum og búist við miklu af þeim í framtíðinni.

Sesko er aðeins kominn með sex mörk og þrjár stoðsendingar í 24 leikjum á tímabilinu. Vlahovic er með átta mörk og eina stoðsendingu í 15 leikjum.


Athugasemdir
banner
banner