Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
   sun 11. september 2022 17:38
Haraldur Örn Haraldsson
Stefán Árni: Þetta var bara geggjað eftir smá erfiðan tíma
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Árni Geirsson leikmaður KR skoraði 2 mörk í dag þegar liðið hans vann 3-1 sigur á Stjörnunni í Vesturbænum í dag.


Lestu um leikinn: KR 3 -  1 Stjarnan

„Leikurinn spilaðist bara vel, við unnum 3-1 og ég var bara mjög ánægður með þetta, góð liðsframmistaða og sterkur sigur, mjög mikilvægur leikur."

 Stefán spilaði vel í dag og skoraði 2 mörk.

„Hún var bara mjög góð (frammistaða hans) og líka þegar maður er í svona liði þar sem það er svo mikið af góðum leikmönnum sem að gefa manni góð tækifæri og maður klárar þau bara og já ég er bara sáttur með frammistöðuna hjá mér og öllu liðinu."

Stefán var lengi meiddur á fyrri hluta tímabils og því er gott að sjá hann ver kominn aftur í sitt besta form.

„Ég er alveg búinn að finna það lengi núna að ég sé tilbúinn og það er bara skemmtilegt að spila fótbolta í þessu veðri og með þessu liði. Þetta var bara geggjað eftir smá erfiðan tíma."

KR-ingar eru nú öruggir í efri hlutanum er þá næsta markmið að reyna blanda sér í evrópubaráttuna?

„Já það bara muna svo miklu að vera spila á móti þessum liðum sem við eigum framundan og við ætlum bara að gefa þeim öllum leik. Það verður bara algjör veisla, við ætlum bara að gera vel og við getum unnið öll lið ef við spilum eins vel og við gerðum í dag og höfum gert í gegnum tíðina."

Stjarnan átti ekki sinn besta leik í dag áttir þú von á þeim betri?

„Ég myndi ekkert segja að þeir hafi verið neitt sérstaklega slakir ég held að við höfum bara spilað vel á móti þeim og þetta er bara fullt af góðum fótboltamönnum í þeirra liði, ungir og spennandi og líka reynslumiklir sem eru geggjaðir leikmenn. Þannig að ég held það hafi bara verið meira við að spila vel frekar en þeir að spila illa."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Athugasemdir
banner
banner