Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 13. maí 2022 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Klopp: Fabinho verður með gegn Real Madrid
Fabinho
Fabinho
Mynd: EPA
Brasilíski miðjumaðurinn Fabinho mun ná úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu en þetta hefur Jurgen Klopp fullyrt.

Fabinho fór meiddur af velli eftir hálftíma í 2-1 sigrinum á Aston Villa á dögunum.

Hann meiddist aftan í nára og verður væntanlega ekki meira með Liverpool í deildinni og missir þá einnig af úrslitaleiknum gegn Chelsea í enska bikarnum um helgina.

Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, segist þó pottþéttur á að hann verði með gegn Real Madrid þann 28. maí.

„Það er munur á því að hafa hann og vera án hans, en þetta er allt í fínasta lagi. Það er eðlilegt og svona getur gerst. Þetta kemur aldrei fyrir í stöðu þar sem maður hefur tólf kosti, það er alltaf staðan þar sem maður er með fæsta kosti."

„Við erum með nokkra leikmenn. Henderson kom inn gegn Villa og spilaði frábærlega. Hann hefur spilað geggjaða leiki á þessu tímabili sem sexa, þannig það er ekkert vandamál,"
sagði Klopp.

Þessi frétt var uppfærð
Athugasemdir
banner
banner
banner