Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. nóvember 2021 16:20
Aksentije Milisic
Mourinho vill fá Dalot til Roma í janúar
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, þjálfari Manchester United, vill fá samlanda sinn Diogo Dalot til Roma í janúar glugganum næstkomandi.

Mourinho fékk Dalot til United árið 2018 en hann telur að Dalot geti styrkt vörnina hjá Roma sem er þunnskipuð.

Samkvæmt Sky Italia, þá hefur Mourinho sagt við stjórnarmenn Roma að hann verði að fá að versla í janúar vilji liðið ná Meistaradeildarsæti.

Roma vann fjóra af fimm fyrstu deildarleikjum sínum en síðan þá hefur liðið einungis unnið tvo af síðustu sjö leikjum sínum. Þá fékk liðið skell í Sambandsdeildinni gegn Bödö/Glimmt sem flestir vita af.

Roma hefur fengið á sig 15 mörk í síðustu sjö leikjum sínum í öllum keppnum og er það áhyggjuefni fyrir Mourinho og hans menn.
Athugasemdir
banner
banner