Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 14. mars 2021 16:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aubameyang mætti of seint í leikinn
Mynd: Getty Images
Pierre-Emerick Aubameyang, fyrirliði Arsenal, var frekar skömmustulegur þegar myndavélar beindust að honum á varamannabekknum fyrir stórleikinn við Tottenham sem er núna í gangi.

Arsenal og Tottenham eru nágrannar og miklir erkifjendur, en fyrirliði Arsenal er á bekknum í dag vegna agavandamála.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, vildi ekki segja hvað það var sem Aubameyang gerði af sér en það hefur núna ratað í fjölmiðla.

Það kemur fram hjá The Athletic að Aubameyang hafi mætt of seint í leikinn. Það sé ekki í fyrsta sinn sem það gerist á þessu tímabili, að fyrirliðinn mæti of seint.

Leikurinn er hafinn og er Alexandre Lacazette fremsti maður Arsenal. Lacazette er jafnframt með fyrirliðabandið.
Athugasemdir
banner
banner