Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 14. mars 2021 10:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: McNeil skoraði eitt af mörkum tímabilsins
McNeil fagnar marki sínu.
McNeil fagnar marki sínu.
Mynd: Getty Images
Burnley gerði góða ferð á Goodison Park í Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Jóhann Berg Guðmundsson átti frábæran leik fyrir Burnley í þessum virkilega flotta sigri.

Burnley byrjaði leikinn mjög vel og lagði grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik. Staðan var 2-1 í hálfleik og Burnley gerðu það sem þeir gera best í seinni hálfleiknum; verjast og vera þéttir.

Dwight McNeil skoraði eitt af mörkum tímabilsins í fyrri hálfleiknum. Hann fór illa með Allan, miðjumann Everton, og smellti svo boltanum upp í samskeytin.

Mörkin úr leiknum má sjá með því að smella hér að neðan.


Athugasemdir
banner