Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 14. nóvember 2021 16:39
Aksentije Milisic
Fimm leikmenn enska landsliðsins draga sig úr hópnum
Grealish og Shaw ekki með á morgun.
Grealish og Shaw ekki með á morgun.
Mynd: Getty Images
Fimm leikmenn enska landsliðsins hafa ákveðið að draga sig úr hópnum og verða því ekki með liðinu þegar það mætir San Marínó í lokaumferð I-riðils í undankeppni HM 2022.

Jordan Henderson, Raheem Sterling, Jack Grealish, Mason Mount og Luke Shaw hafa allir dregið sig úr hópnum en Crystal Palace leikmaðurinn Conor Gallagher er eini leikmaðurinn sem kemur inn í hópinn.

Henderson, Grealish og Shaw eru meiddir og eru því ekki í hópnum. Raheem Sterling dregur sig úr hóp vegna persónulegra ástæðna en svo er óljóst afhverju Mason Mount, leikmaður Chelsea, er ekki í hópnum.

England er í góðum málum í riðli sínum og nægir liðinu einungis stig gegn San Marínó og þá er liðið komið á HM sem fer fram í Katar á næsta ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner