Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. maí 2023 22:27
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu mörkin úr bikarsigri Þórs
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór fékk Leikni R. í heimsókn á Akureyri í fyrsta leik 16-liða úrslita Mjólkurbikars karla fyrr í kvöld.


Lestu um leikinn: Þór 3 -  1 Leiknir R.

Akureyringar voru sterkari aðilinn í leiknum og skópu að lokum sanngjarnan 3-1 sigur, þó að Leiknismenn hafi komist nálægt því að jafna leikinn á stuttum kafla.

Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr sigrinum.

Þór og Leiknir leika bæði í Lengjudeildinni og eru með þrjú stig hvort eftir tvær fyrstu umferðirnar þar.

Aron Ingi Magnússon, Ion Perelló og Ingimar Arnar Kristjánsson skoruðu mörk Þórs. Róbert Hauksson gerði mark Leiknis.


Athugasemdir
banner
banner