Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 17. júlí 2022 15:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Howe: Ég ber ekki slæmar tilfinningar til Ekitike
Mynd: EPA
Hugo Ekitike gekk til liðs við PSG á láni frá Reims en PSG hefur möguleika á að kaupa hann eftir tímabilið.

Ekitike var sterklega orðaður við Newcastle í janúar en enska liðinu tókst ekki að ná samkomulagi við franska félagið og snéri sér þá að Chris Wood sem Newcastle fékk frá Burnley.

Newcastle er í æfingaferð í Austurríki en Eddie Howe stjóri liðsins var spurður út í félagsskipti Ekitike þar í dag.

„Það er ekkert leyndarmál að okkur líkaði vel við Hugo og við reyndum mjög miið að næla í hann. Hann er mjög hæfileikaríkur og hann ákvað að fara til PSG," sagði Howe.

„Ég ber ekki slæmar tilfinningar til hans. Ég óska honum góðs gengis í næsta kaflanum á ferlinum."



Athugasemdir
banner
banner