Jóhann Ólafur varð markakóngur í 3. deild
Danski sóknarmaðurinn Patrick Pedersen er orðinn markahæsti leikmaðurinn í Pepsi-deild karla. Hann skoraði þrennu í 5-1 sigri Vals gegn ÍBV í gær og hefur nú komist fram úr Hilmari Árna Halldórssyni í baráttunni um gullskó Adidas.
Hilmar hefur ekki skorað síðan í lok júlí á meðan Pedersen hefur verið sjöðandi heitur og er kominn með 16 mörk. Pedersen er þremur mörkum frá því að jafna markametið þegar tvær umferðir eru eftir. Valur á eftir að mæta FH og botnliði Keflavíkur.
Stjarnan á þrjá leiki eftir; gegn KA, ÍBV og FH.

Af efstu fjórum deildum Íslandsmóts karla hefur Viktor Jónsson, sóknarmaður Þróttar, skorað flest mörk. Viktor er kominn með 22 mörk í Inkasso-deildinni. Hann er búinn að setja nokkrar þrennur en ein slík kom um liðna helgi!
Ein umferð er eftir í Inkasso og 2. deild en 3. deildin er búin. Jóhann Ólafur Jóhannsson úr KFG varð markakóngur en Garðabæjarliðið komst upp ásamt Dalvík/Reyni.
Pepsi-deild karla:
16 mörk - Patrick Pedersen (Valur)
15 - Hilmar Árni Halldórsson (Stjarnan)
11 - Pálmi Rafn Pálmason - KR
10 - Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
9 - Steven Lennon (FH)
Inkasso-deild karla:
22 - Viktor Jónsson (Þróttur)
17 - Guðmundur Magnússon (Fram)
15 - Alvaro Montejo (Þór)
10 - Gonzalo Zamorano (Víkingur Ó.)
10 - Brynjar Jónasson (HK)
10 - Kwame Quee (Víkingur Ó.)
10 - Stefán Teitur Þórðarson (ÍA)
2. deild karla:
19 - Andri Freyr Jónasson (Afturelding)
13 - Andri Júlíusson (Kári)
13 - Pétur Bjarnason (Vestri)
11 - Guðmundur Óli Steingrímsson (Völsungur)
10 - Javi Munoz (Höttur)
9 - Ásgeir Kristjánsson (Völsungur)
3. deild karla (Deild lokið):
15 - Jóhann Ólafur Jóhannsson (KFG)
11 - Númi Kárason (Einherji)
10 - Nökkvi Þeyr Þórisson (Dalvík/Reynir)
10 - Ingólfur Sigurðsson (KH)
9 - Magnús Björgvinsson (KFG)
9 - Daníel Rögnvaldsson (Vængir Júpiters)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |

Athugasemdir