Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 20. júní 2019 09:08
Arnar Daði Arnarsson
4. deild: Úlfarnir skoruðu fimm gegn KB
Mynd: Raggi Óla
Úlfarnir héldu sigurgöngu sinni áfram í B-riðli 4.deildar þegar liðið sigraði KB á heimavelli 5-0 í gærkvöldi.

Úlfarnir hafa nú unnið þrjá leiki í röð og eru með 12 stig í 3. sæti riðilsins á eftir Snæfelli og Hvíta Riddaranum.

Úlfarnir voru 3-0 yfir í hálfleik en Steinar Haraldsson sem skoraði þrennu í leiknum bætti við tveimur mörkum í seinni hálfleik og lokatölur því 5-0.

Úlfarnir 5 - 0 KB
1-0 Steinar Haraldsson ('5)
2-0 Andri Þór Sólbergsson ('29)
3-0 Hákon Gunnarsson ('45+1)
4-0 Steinar Haraldsson ('54)
5-0 Steinar Haraldsson ('64)

Sjá úrslitin úr leikjum gærkvöldsins.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner