Willum Þór Willumsson gekk til liðs við Go Ahead Eagles í Hollandi á dögunum.
Hann hefur byrjað undirbúningstímabilið af krafti. Hann lék 60 mínútur á dögunum í leik gegn liði sem er skipað samningslausum leikmönnum í Hollandi.
Þar átti hann frábæran sprett þegar hann prjónaði sig í gegnum vörnina og senti boltann fyrir og lagði upp þriðja mark liðsins í 5-1 sigri.
Go Ahead Eagles lék síðan gegn ísraelska liðinu Hapoel Ironi Kiryat Shmona í dag. Willum kom inná sem varamaður á 61. mínútu og skoraði eina mark leiksins tólf mínútum síðar.
Athugasemdir