Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. maí 2019 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Bielsa ætlar að taka eitt ár í viðbót með Leeds - Hafnar Roma
Marcelo Bielsa
Marcelo Bielsa
Mynd: Getty Images
Argentínski knattspyrnustjórinn Marcelo Bielsa ætlar að taka eitt ár til viðbótar hjá Leeds United ef marka má frétt frá The Telegraph.

Bielsa tók við Leeds síðasta sumar og gerði frábæra hluti með liðið en það var lengi vel í efsta sæti deildarinnar áður en það gaf eftir undir lok tímabils.

Liðið hafnaði í 3. sæti deildarinnar og fór í umspil um sæti í ensku úrvalsdeildinni en tapaði í tveggja leikja rimmu gegn Derby County.

Bielsa kom sér reglulega í fréttirnar í ensku B-deildinni, þá sérstaklega þegar hann hélt blaðamannafund og lýsti því hvernig hann njósnaði um Derby og önnur lið í B-deildinni, meðal annars með drónum.

Það kom í bakið á honum en hann vill þó taka eitt tímabil til viðbótar með Leeds.

Ítalska félagið Roma hefur sýnt honum mikinn áhuga en hann er tilbúinn til þess að hafna því samningstilboði til að reyna aftur við úrvalsdeildarsæti með Leeds.
Athugasemdir
banner