Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. júlí 2022 12:30
Elvar Geir Magnússon
20 þúsund með Suarez grímur
Mynd: EPA
Stuðningsmenn Nacional í Úrúgvæ þrá ekkert heitar en að Luis Suarez snúi aftur til félagsins.

Til að sýna það skýrt þá voru um 20 þúsund stuðningsmenn liðsins með Suarez grímur í leik liðsins gegn Cerrito í dag.

Suarez er úrúgvæskur landsliðsmaður, 35 ára, og er félagslaus eftir að hafa yfirgefið Atletico Madrid þegar samningur hans rann út í sumar.

Þessi fyrrum sóknarmaður Liverpool og Barcelona var orðaður við Borussia Dortmund í slúðurpakkanum í morgun.

En samkvæmt fréttum frá heimalandi hans er Suarez að snúa aftur þangað sem ævintýrið hófst. Hann lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir Nacional 2005, átján ára gamall.
Athugasemdir
banner