Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 24. mars 2021 13:05
Magnús Már Einarsson
Vonast til að Andri Fannar og Valgeir Lunddal spili
Icelandair
Valgeir Lunddal á æfingu í Ungverjalandi.
Valgeir Lunddal á æfingu í Ungverjalandi.
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Davið Snorri Jónasson, þjálfari U21 landsliðs karla, vonast til að bæði Valgeir Lunddal Friðriksson og Andri Fannar Baldursson verði klárir í slaginn fyrir fyrsta leikinn á EM gegn Rússum á morgun.

Báðir leikmennirnir hafa verið að glíma við smávægileg meiðsli.

„Það eru allir í ágætis standi. Valgeir Lunddal verður betri með hverjum deginum og gerir meira í dag en í gær. Andri Fannar er með smá hnjask og verður rólegur í dag," sagði Davíð Snorri á fréttamannafundi í dag.

Davið segir að það skýrist eftir æfingu í dag hvort þeir geti spilað á morgun.

„Við vitum það betur seinna í dag. Við vonumst til að allir verði klárir á morgun," sagði Davíð.
Athugasemdir
banner
banner