Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. maí 2021 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir í úrslitaleiknum: Einn besti leikur McTominay
Þessir tveir skiluðu sínu.
Þessir tveir skiluðu sínu.
Mynd: EPA
Marcus Rashford átti líklega einn sinn versta leik á ferlinum þegar Manchester United tapaði fyrir Villarreal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í kvöld.

Leikurinn fór í vítaspyrnukeppni þar sem Villarreal hafði betur eftir ótrúlega keppni.

Rashford átti dapran dag en Scott McTominay var stórkostlegur á miðjunni og átti einn sinn besta leik í treyju United.

Hér að neðan má sjá einkunnir Telegraph frá því í kvöld.

Einkunnir Villarreal: Rulli 7, Foyth 7, Albiol 6, Torres 7, Pedraza 6, Pino 6, Capoue 7, Parejo 6, Trigueros 6, Moreno 8, Bacca 7.

Einkunnir Man Utd: De Gea 7, Wan-Bissaka 5, Bailly 5, Lindelöf 5, Shaw 7, McTominay 9, Pogba 7, Greenwood 6, Fernandes 6, Rashford 5, Cavani 8.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner